TEDx Reykjavík

Maximise

TEDx Reykjavík - An independently organized TED event

TED hefur nú fært út kvíarnar og býður upp á ráðstefnur undir nafninu TEDx.

TEDx er viðburður sem er skipulagður til þess að sameina fólk sem vill deila TED upplifuninni – að deila hugmyndum sem eiga skilið að heyrast. Okkar ráðstefna kallast TEDx Reykjavík þar sem x-ið stendur fyrir óháðan TED viðburð. Á TEDx Reykjavík verða TED erindi kveikjan að djúpum samræðum og tengslamyndun í þeim góða hópi sem mætir.

TED ráðstefnan er fyrirmyndin að því hvernig TEDx eigi að fara fram en TEDx Reykjavík er að öðru leyti skipulögð af Hugmyndaráðuneytinu.


Fylgstu með á Facebook og Twitter

Atburðurinn

TEDxReykjavík verður haldin í aðalráðstefnusal Loftleiða þann 6. október 2009. Dagskráin, innblástur og frábærar hugmyndir hefjast kl. 10 og standa til 18. Fyrstir koma fyrstir fá!

Fylgist með á Facebook og Twitter.

Um TEDx

TEDx ráðstefnan er skipulögð til að sameina fólk sem vill deila TED upplifuninni og er byggð á TED hugmyndinni – að deila hugmyndum sem eiga skilið að heyrast.

Á TEDx verða TED erindi kveikjan að djúpum samræðum og tengslamyndun þess góða fólks sem mætir. Viðburðurinn okkar heitir TEDx Reykjavík, þar sem x-ið stendur fyrir óháðan TED viðburð.

TED ráðstefnan er fyrirmyndin að því hvernig TEDx eigi að fara fram en TEDx Reykjavík er að öðru leyti skipulögð af Hugmyndaráðuneytinu.

Um TED

TED er árleg ráðstefna þar sem leiðandi hugsuðum og athafnamönnum í heiminum er boðið að deila eldmóði sínum með öðrum. „TED“ stendur fyrir „Technology, Entertainment and Design“ eða „tækni, skemmtun og hönnun“. Þessar þrjár meginstoðir eiga það sameiginlegt að móta framtíð okkar. Í raun er þessi viðburður enn víðtækari og segir frá því sem skiptir máli í hvaða grein sem er. Þeir sem sótt hafa ráðstefnuna hafa nefnt þetta „Bláa lónið fyrir heilann“ og „fjögurra daga ferð inn í framtíðina“. Fjölbreyttur og þverfaglegur hópur áhorfenda samanstendur af framkvæmdastjórum, vísindamönnum, listafólki og mannvinum. Hópurinn er nánast eins magnaður og þeir sem hafa haldið þar erindi, sem dæmi má nefna Bill Clinton, Bill Gates, Al Gore, Jane Goodall, Frank Gehry, Paul Simon, Sir Richard Branson, Philippe Starch og Bono. Einnig hafa tveir Íslendingar, Kári Stefánsson og Ólafur Elíasson, flutt glæsileg erindi á TED.

TED ráðstefnan var fyrst haldin í Monterey í Kaliforníu árið 1984. Árið 2001 eignaðist ungsprotasjóður Chris Anderson TED af stofnandanum, Richard Saul Wurman. Á undanförnum árum hefur TED boðið upp á alþjóðlega ráðstefnu, TEDGlobal, og að auki boðið upp á ýmislegt fleira, þar á meðal TED.com og TED verðlaunin. TED2010 verður undir yfirskriftinni „Það sem heimurinn þarfnast núna“ og verður haldin 9. -13. febrúar árið 2010 á Long Beach í Kaliforníu. Á sama tíma verður sent beint út frá ráðstefnunni í Palm Springs í sama fylki. TEDGlobal 2009, „Undirstaða ósýnilegra hluta“, var haldin 21. -24. júlí 2009 í Oxford, Bretlandi og TEDIndia verður haldin í nóvember 2009 á Indlandi.

Hafðu samband

Fylgstu með á Facebook og Twitter eða sendu okkur línu á tedx@hugmyndaraduneytid.is